Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 28. 2014 | 14:45

EPD: Þórður Rafn lauk keppni 5 yfir pari í Þýskalandi

Þórður Rafn Gissurarson, GR lauk í dag keppni í á Gut Bissenmoor Classic 2014 meistaramótinu sem er hluti af þýsku EPD mótaröðinni.

Mótið fór fram í Bad Bramstedt í Þýskalandi og stóð dagana 26.- 28. ágúst 2014.

Þórður Rafn lék samtals á 5 yfir pari 218 höggum (72 73 73).  Þórður spilaði jafnt og stöðugt golf og var á pari á 16 holum og fékk auk þess 2 skolla.

Þórður Rafn hafnaði í 39. sæti.

Sigurvegari mótsins varð Sebastian Heisele frá Þýskalandi en hann lék á samtals 14 undir pari.

Til þess að sjá lokastöðuna á Gut Bissenmoor Classic SMELLIÐ HÉR: