Þórður Rafn Gissurarson, GR. Mynd: Golf 1 EPD: Þórður Rafn í 4. sæti f. lokahring á Open Madaef
Þórður Rafn Gissurarson, GR, er í fjórða sæti fyrir lokahringinn á Open Madaef atvinnumótinu sem fram fer í Marokkó. Þórður náði ekki að fylgja eftir góðum fyrsta hring þar sem hann var efstur á -4 en hann lék á 75 höggum +3 í dag. Þórður fékk þrjá skolla á hringnum og lék aðrar brautir á pari.
Hann er jafn í fjórða sæti á -1 samtals en franskur kylfingur er efstur á -6 samtals. Þetta er ellefta mótið hjá Þórði á tímabilinu en besti árangur Þórðar Rafns er áttunda sætið á þessu tímabili.
Fimm efstu á stigalista Pro Golf mótaraðarinnar tryggja sér sæti á Áskorendamótaröðinni á næsta tímabili – sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í Evrópu. Að auki tryggja þeir sér sæti á öðru stigi af alls þremur á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina.
Pro Golf mótaröðin, er einnig þekkt undir nafninu EPD mótaröðin, en frá árinu 2001 hefur mótaröðin verið í flokki mótaraða sem teljast til þriðju deildar í Evrópu.
Margir þekktir kylfingar hafa farið í gegnum Pro Golf mótaröðina og má þar nefna Martin Kaymer frá Þýskalandi, sem hefur sigrað á risamóti og leikið með Ryderliði Evrópu. Marcel Siem, landi hans, hefur einnig farið í gegnum þessa mótaröð.
Til þess að sjá stöðuna í mótinu e. 2. dag SMELLIÐ HÉR:
Heimild: golf.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
