Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2015 | 11:45

EPD: Þórður Rafn efstur e. 1. hring Open Madaef mótsins í Marokkó

Þórður Rafn Gissurarson, GR, byrjar vel á Open Madaef atvinnumótinu sem fram fer í Marokkó. GR-ingurinn er efstur að loknum fyrsta keppnisdegi á -4 en hann lék á 68 höggum. Mótið er hluti af þýsku Pro Golf atvinnumótaröðinni. Þórður er með þriggja högga forskot en þetta er ellefta mótið hjá honum á tímabilinu. Besti árangur Þórðar Rafns er áttunda sætið á þessu tímabili.

Fimm efstu á stigalista Pro Golf mótaraðarinnar tryggja sér sæti á Áskorendamótaröðinni á næsta tímabili – sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í Evrópu. Að auki tryggja þeir sér sæti á öðru stigi af alls þremur á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina.
Pro Golf mótaröðin, er einnig þekkt undir nafninu EPD mótaröðin, en frá árinu 2001 hefur mótaröðin verið í flokki mótaraða sem teljast til þriðju deildar í Evrópu.
Margir þekktir kylfingar hafa farið í gegnum Pro Golf mótaröðina og má þar nefna Martin Kaymer frá Þýskalandi, sem hefur sigrað á risamóti og leikið með Ryderliði Evrópu. Marcel Siem, landi hans, hefur einnig farið í gegnum þessa mótaröð.

Fylgjast má með gengi Þórðar Rafns á  Open Madaef mótinu með því að SMELLA HÉR: 

Heimild: golf.is