EPD: Þórður Rafn úr leik á Open Al Maaden mótinu í Marokkó
Þórður Rafn Gissurarson, GR, spilaði í dag annan hring sinn á Open Al Maaden mótinu, sem er hluti af þýsku EPD-mótaröðinni, en mótið hófst í gær. Spilað er á golfvelli Almaaden golfstaðarins í Marakesch, Marokkó.
Þátttakendur í mótinu eru 120.
Þórður Rafn lék í gær á pari, 72 höggum; fékk 3 fugla, 12 pör og 3 skolla og var í 60. sæti eftir 1. keppnisdag.
Í dag gekk verr, en Þórður Rafn var á 5 yfir pari, 77 höggum og er nokkuð ljóst á þessari stundu að hann kemst ekki í gegnum niðurskurð, þótt nokkrir eigi eftir að ljúka leik, en sem stendur er niðurskurður miðaður við 2 undir pari.
Þjóðverjinn Daniel Wünsche, sem var efstur eftir 1. dag á 64 glæsihöggum, hrundi niður skortöfluna í dag eftir hring upp á 4 yfir pari, 76 höggum. Hann er þó samtals á 4 undir pari og á góðan möguleika á að komast í gegnum niðurskurð.
Í efsta sæti sem stendur er annar Þjóðverji, Guillaume Wätremez, en hann er búinn að spila á samtals 10 undir pari, 134 höggum (67 67). Staðan gæti þó enn breyst nokkuð því nokkrir eiga eftir að ljúka leik
Til þess að sjá stöðuna á Open Al Maaden eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
