Frá Lixus Marina & Golf Club í Marokkó
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2012 | 06:30

EPD: Stefán Már og Þórður Rafn báðir úr leik í Open Lixus mótinu í Marokkó

Í gær lauk Open Lixus mótinu sem fram fór dagana 21.-23. apríl í Port Lixus Marina & Golf Resort í Marokkó. Meðal þátttakenda voru Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson, báðir í GR.

Báðir komust þeir ekki í gegnum niðurskurð en hann var að þessu sinni miðaður við samtals +5 yfir pari, eftir 36 spilaðar holur.

Þórður Rafn spilaði á samtals +6 yfir pari (74 76)  og var því aðeins 1 höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.

Stefán Már spilaði á samtals +7 yfir pari (79 72) og var það einkum slakur fyrri hringur sem eyðilagði fyrir honum að komast í gegn. Stefán hefði þurft að spila seinni hringinn á 70 höggum til að ná í gegn.

Til þess að sjá úrslit í Port Lixus Marina & Golf Resort smellið HÉR: 

Næsta mót á EPD mótaröðinni þýsku er Haugschlag NÖ Open í Austurríki, en það fer fram eftir mánuð 22.-24. maí n.k.