EM karla: Íslenska karlalandsliðið í 10. sæti e. 1. dag
Íslenska karlalandsliðið er í 10. sæti eftir fyrsta keppnisdaginn á Evrópumótinu sem fram fer í Þýskalandi. Á fyrstu tveimur keppnisdögunum er leikinn höggleikur þar sem að fimm bestu skorin telja. Átta efstu liðin komast í A-riðil og eiga möguleika á að vinna til verðlauna, liðin sem enda í sætum 9 eða neðar keppa í B riðli þar sem leikið er um sæti.
Tvær neðstu þjóðirnar í karlaflokki falla í 2. deild. Staðan er hér:
Ísland er á parinu samtals. Skor íslenska liðsins á fyrsta keppnisdeginum var þannig:
Aron Snær Júlíusson (GKG), 73 högg (+1)
Bjarki Pétursson (GB), 75 högg (+3)
Björn Óskar Guðjónsson (GM), 72 högg (par)
Gísli Sveinbergsson (GK), 70 högg (-2)
Henning Darri Þórðarson (GK), 75 högg (+3)
Rúnar Arnórsson (GK), 70 högg (-2)
Keppt er dagana 10.-14. júlí á Golf Club Bad Saarow vellinum rétt við Berlín í Þýskalandi. Arnór Ingi Finnbjörnsson er fyrirliði og Jussi Pitkänen verður ráðgjafi liðsins.
Sjá má stöðuna á EM karla með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
