Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2023 | 07:30

EM í liðakeppni kvenna 2023: Staðan fyrir lokadaginn

Evrópumót í liðakeppni kvenna 2023 fer fram í Tawast Golf & Country Club, í Finnlandi dagana 11.-15. júlí.

Íslenska kvennasveitin sem þátt tekur fyrir Íslands hönd 2023 er svo skipuð:

Andrea Bergsdóttir, Hills GC
Anna Júlía Ólafsdóttir, GKG
Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
Saga Traustadóttir, GKG

Ólafur Björn Loftsson er þjálfari og Árný Lilja Árnadóttir er sjúkraþjálfari íslensku kvennanna.

Þátttakendaþjóðir að þessu sinni eru 19: Austurríki, Belgía, Danmörk, England, Finnland, Frakkland, Ísland, Írland, Ítalía, Skotland, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tékkland, Tyrkland, Wales og Þýskaland.

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að fyrstu tvo dagana er spilaður höggleikur og þrjá næstu daga holukeppni. Fimm bestu skorin telja í höggleikshlutanum, en 6 kylfingar eru í hverju liði. Í A-riðli keppa síðan 8 efstu þjóðirnar um Evrópumeistaratitilinn.

Þær þjóðir sem eru í 9.-16. sæti keppa í B-riðli, en aðrar þjóðir sem eru fyrir neða 16. sætið í C-riðli.

Í holukeppninni eru spilaðir 2 fjórmenningar (ens. foursomes) fyrir hádegi og 5 tvímenningsleikir (ens.: sigles) eftir hádegi.

1. keppnisdagur:

Íslenska liðið lék á samtals +24 284 höggum. Fimm bestu skorin af 6 hjá hverju liði töldu:

Hulda Clara Gestsdóttir lék á 71 höggi (-1) = 25. sæti.
Andrea Bergsdóttir lék á 75 höggum (+3) = 67. sæti.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir lék á 75 höggum (+3) = 67. sæti.
Heiðrún Anna Hlynsdóttir lék á 77 höggum (+5) = 86. sæti.
Anna Júlía Ólafsdóttir lék á 78 höggum (+6) = 91. sæti.
——————————————-
Saga Traustadóttir lék á 79 höggum (+7) = 101. sæti.

Í efsta sæti eftir 1. keppnisdag er Svíar á samtals -20; í 2. sæti eru Þjóðverjar á -15 samtals og í 3. sæti Spánn á samtals -11. Alls voru 6 lið sem spiluðu á samtals undir pari á 1. degi.

2. keppnisdagur:

Eftir daginn var íslenska liðið í 13. sæti á samtals +18  738 höggum (376 362) og leikur því um 9.-16. sætið í mótinu í B-riðli.

Svona stóðu íslensku konurnar sig:

Hulda Clara Gestsdóttir varð T-7 í höggleikshlutanum á samtals á -7 eða 137 höggum (71 66). Hulda Clara átti stórglæsilegan 2. hring þar sem hún lék á 8 undir pari, 66 höggum og fékk 6 fugla!!!! Hún stóð sig jafnframt best allra í íslenska liðinu. Stórglæsileg!!!

Perla Sól Sigurbrandsdóttir lék samtals á 2 yfir pari 146 höggum (75 71). Hún varð í 51. sæti í höggleiknum.

Andrea Bergsdóttir lék á samtals +4 148 höggum  (75 73). Hún varð í 67. sæti í höggleiknum.

Heiðrún Anna Hlynsdóttir lék á samtals+8  152 höggum (77 75). Hún varð í 86. sæti í höggleiknum.

Anna Júlía Ólafsdóttir lék samtals á +11 155 höggum  (77 78). Hún endaði í 97. sæti í höggleiknum.

Saga Traustadóttir lék samtals á +12 156 höggum  (79 77). Hún varð í 101. sæti í höggleiknum.

3. keppnisdagur

Island mætti Dönum og tapaði 4&1. Eini leikur Íslands sem vannst í tvímenninguum þann dag var viðureign Huldu Clöru við Cecile Leith-Nissen 3&1.

4. keppnisdagur

Island mætir liði Slóvakíu í dag, föstudaginn 14. júlí og síðan lýkur mótinu á morgun.

Sjá má allt nánar um mótið með því að SMELLA HÉR: 

Í aðalmyndaglugga: Kvennasveit Íslands, sem þátt tók í Evrópumóti í liðakeppni kvenna 2023. F.v.: Heiðrún Anna, Perla Sól, Saga, Hulda Clara, Anna Júlía og Andrea. Mynd: GSÍ