Frændsystkinin og tveir bestu kylfingar landsins: Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir í Keili. Þau unnu 1. mótið styrktu af Erninum á Eimskipsmótaröðinni 2011. Mynd: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 17. 2017 | 20:00

Eimskipsmótaröðin 2018 (2): Axel og Guðrún Brá sigruðu á Honda mótinu

Það var Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, sem stóð uppi sem sigurvegari á Honda mótinu, 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar á keppnistímabilinu 2017-2018 í kvennaflokki.

Frændi hennar Axel Bóasson, GK, sigraði í karlaflokki.

Mótið sem var stytt í 2 hringja mót fór fram á Urriðaveli.

Axel var þremur höggum betri en Andri Þór Björnsson úr GR. Íslandsmeistarinn (Axel) frá því í sumar léká 5 höggum yfir pari samtals við erfiðar aðstæður á tveimur keppnishringjum á Urriðavelli. Andri Þór gerði harða atlögu að efsta sætinu á lokahringnum en Axel stóðst álagið og landaði nokkuð öruggum sigri.

F.v.: Andri Þór, GR; sigurvegarinn, Axel, GK og Tumi Hrafn Kúld, GA. Mynd: GSÍ

F.v.: Andri Þór, GR; sigurvegarinn, Axel, GK og Tumi Hrafn Kúld, GA. Mynd: GSÍ

Lokastaða efstu kylfinga í karlaflokki:

1. Axel Bóasson, GK (74-73) 147 högg +5
2. Andri Þór Björnsson, GR (79-71) 150 högg +8
3. Tumi Hrafn Kúld, GA (74-78) 152 högg +10
4. Ólafur Björn Loftsson, GKG (79-75) 154 högg +12
5. Vikar Jónasson, GK (79-76) 155 högg +13
6. Böðvar Bragi Pálsson, GR (83-73) 156 högg +14
7. Andri Már Óskarsson, GHR (79-78) 157 högg +15
8. Hákon Harðarson, GR (85- 75) 160 högg +18
9. Henning Darri Þórðarson, GK (84-78) 162 högg +20
10. Haukur Már Ólafsson, GKG (82-83) 165 högg +23

Anna Sólveig, GK; sigurvegarinn Guðrún Brá , GK og Saga Trausta GR. Mynd: GSÍ

Anna Sólveig, GK; sigurvegarinn Guðrún Brá , GK og Saga Trausta GR. Mynd: GSÍ

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili sigraði á öðru móti sínu í röð á Eimskipsmótaröðinni í golfi á keppnistímabilinu 2017-2018. Guðrún Brá sigraði á Honda Classic mótinu sem lauk í dag á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. Hún sigraði einnig á fyrsta móti tímabilsins, Bose mótinu, sem fram fór á Jaðarsvelli á Akureyri fyrir tveimur vikum.

Lokastaða efstu kylfinga í kvennaflokki:

1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (76-75) 151 högg +9
2. Saga Traustadóttir, GR (82-76) 158 högg +16
3. Anna Sólveig Snorradóttir, GK (79 -81) 160 högg +18
4. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG (84- 78) 162 högg +20
5. Berglind Björnsdóttir, GR (84-85) 169 högg +27
6.-7. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA (85-88) 173 högg +31
6.-7. Hrafnhildur Guðjónsdóttir, GO (85-88) 173 +31