Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG, í Vestmannaeyjum. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2017 | 21:00

Eimskipsmótaröðin 2017 (5): Helga Kristín mætir Guðrúnu Brá og Alfreð Brynjar, Agli Ragnari í úrslitum Íslandsmótsins í holukeppni

Íslandsmótið í holukeppni fer nú fram út í Vestmannaeyjum.

Ljóst er að Íslandsmeistarinn í holukeppni í kvennaflokki kemur úr Golfklúbbnum Keili (GK) í Hafnarfirði og í karlaflokki úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG).

Þær sem spila til úrslita í kvennaflokki eru Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Helga Kristín Einarsdóttir og í karlaflokki er slagurinn milli Alfreðs Brynjars Kristinssonar og Egils Ragnars Gunnarssonar.

Í undanúrslitunum vann Guðrún Brá Hafdísi Öldu Jóhannsdóttur GK 7&6 og Helga Kristín, Önnu Sólveigu Snorradóttur, GK, 4&3.

Í undanúrslitunum í karlaflokki vann Alfreð Brynjar, Jóhannes Guðmundsson GR, 3&2 og Egill Ragnar, Stefán Þór Bogason, GR, 7&5.

Hér er hægt að skoða riðla og úrslit leikja SMELLIÐ HÉR: