Eimskipsmótaröðin 2017 (3): Valdís Þóra meðal keppenda á 1. móti ársins-Egils Gullmótinu!
Það er mat fagmanna og sérfræðinga sem sjá um umhirðu golfvalla landsins að vellirnir komi afar vel undan vetri. Það ríkir því mikil tilhlökkun hjá keppendum fyrir þriðja mót keppnistímabilsins á Eimskipsmótaröðinni 2016-2017. Egils–Gullmótið fer fram á Hólmsvelli í Leiru 19.-21. maí. Tímabilið 2016-2017 er fyrsta tímabilið í sögu Eimskipsmótaraðarinnar þar sem keppni á nýju tímabili hófst að hausti til.
Skráning í Egils-Gull mótið stendur yfir og hafa margir þekktir kylfingar skráð sig til leiks. Þar má nefna að Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, er skráð til leiks. Valdís Þóra er tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi og er ein þriggja íslenskra kvenna sem hafa komist inn á sterkustu atvinnumótaröð í Evrópu, LET.
Valdís Þóra hefur náð góðum árangri á undanförnum mánuðum á LET Evrópumótaröðinni og LET Access mótaröðinni – og verður spennandi að fylgjast með henni á Hólmsvelli í Leiru.
Veðurspáin fyrir næstu helgi er ljómandi góð samkvæmt yr.no – Sjá með því að SMELLA HÉR:
Eins og áður segir stendur skráning í Egils-Gullmótið enn yfir og komast á skráningartengil GSÍ með því að SMELLA HÉR:
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 23:59 þriðjudaginn 15. maí. Greiða verður þátttökugjaldið með greiðslukorti við skráningu.
Fyrsta mót ársins á Eimskipsmótaröðinni, mótaröð bestu kylfinga landsins, er jafnframt þriðja mótið á keppnistímabilinu 2016-2017. Tvö fyrstu mót tímabilsins fóru fram s.l. haust í Nýherjamótið í Vestmanneyjum og Honda–Classic á Akranesi.
Alls eru átta mót á hverju tímabili á Eimskipsmótaröðinni. Það eru sex mót eftir á þessu tímabili en tvö mót í september á þessu ári marka upphafið á nýju tímabili 2017-2018.
Axel Bóasson úr GK og Ragnhildur Kristinsdóttir GR stóðu uppi sem stigameistarar á síðasta tímbili á Eimskipsmótaröðinni. Þetta var annað árið í röð sem Axel er stigameistari en hann fagnaði sínum fyrsta stigameistaratitli haustið 2016. Ragnhildur varð stigameistari í fyrsta sinn í fyrra.
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
