Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 21. 2017 | 17:00

Eimskipsmótaröðin 2017 (3): Berglind sigraði á Egils Gull mótinu í kvennaflokki

Það var Berglind Björnsdóttir, GR, sem stóð uppi sem sigurvegari í Egils Gull mótinu í kvennaflokki í dag.

Berglind lék á samtals 6 yfir pari, 222 höggum (77 71 74).

Þetta er í 3. skiptið sem Berglind sigrar á Egils Gull  mótinu á Eimskipsmótaröðinni; en hún sigraði áður í þessu móti Eimskipsmótaraðarinnar, 9. maí 2012 á Vestmannaeyjavelli og síðan 1. júní 2014 á Strandarvelli, á Hellu.

Glæsilegt hjá Berglindi!!!

Berglind með flotta sveiflu!!! Mynd: Golf 1

Berglind með flotta sveiflu!!! Mynd: Golf 1

Í stuttu viðtali við Golf 1 sagði Berglind að hún ætlaði að keppa í eins mörgum mótum í sumar og hún gæti og fara síðan í Q-school í haust. Aðspurð um ástand Leirunnar, sagði Berglind hana vera frábæra og hún hefði sjaldan séð Leiruna koma svona vel undan vetri.

Berglind ásamt kaddý sínum eftir sigurinn. á 3. Egils Gull mótinu. Mynd: Golf 1

Berglind ásamt kaddý sínum eftir sigurinn. á 3. Egils Gull mótinu. Mynd: Golf 1

Í 2. sæti varð Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, á 9 yfir pari 225 höggum (71 78 76), en þess mætti geta að Ragnhildur spilaði meidd á hné (hypertension) allt mótið. Meira hörkutólið og í ljósi þess alveg ótrúlegur árangur að landa 2. sætinu!

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR. Mynd: Golf 1

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR. Mynd: Golf 1

Í 3. sætinu varð síðan Saga Traustadóttir, GR á samtals 14 undir pari, 230 höggum (77 78 75). Þannig að það voru GR-ingar sem röðuðu sér í öll 3 toppsætinu á fyrsta móti ársins á Eimskipsmótaröðinni.

Saga (t.h.) ásamt ráshóp sínum Kingu Korpak (t.v.), GS og Hafdísi Öldu Jóhanssdóttur (f.m.), GK. Mynd: Golf 1

Saga Traustadóttir, GR (t.h.) ásamt ráshóp sínum Kingu Korpak, GS (t.v.), og Hafdísi Öldu Jóhanssdóttur (f.m.), GK. Mynd: Golf 1

Hér að neðan má sjá úrslitin í kvennaflokki á Egils Gull mótinu í heild:

1 Berglind Björnsdóttir GR 3 F 38 36 74 2 77 71 74 222 6
2 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 1 F 41 35 76 4 71 78 76 225 9
3 Saga Traustadóttir GR 3 F 38 37 75 3 77 78 75 230 14
4 Gunnhildur Kristjánsdóttir GK 4 F 40 39 79 7 75 79 79 233 17
5 Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 5 F 41 40 81 9 77 78 81 236 20
6 Heiða Guðnadóttir GM 4 F 39 39 78 6 79 80 78 237 21
7 Hulda Clara Gestsdóttir GKG 7 F 40 42 82 10 78 80 82 240 24
8 Anna Sólveig Snorradóttir GK 4 F 41 37 78 6 83 80 78 241 25
9 Sigurlaug Rún Jónsdóttir GK 6 F 41 38 79 7 79 84 79 242 26
10 Zuzanna Korpak GS 8 F 39 43 82 10 82 80 82 244 28
11 Kinga Korpak GS 9 F 46 41 87 15 78 79 87 244 28
12 Þórdís Geirsdóttir GK 4 F 43 41 84 12 79 83 84 246 30
13 Andrea Ýr Ásmundsdóttir GA 7 F 44 40 84 12 87 77 84 248 32
14 Stefanía Kristín Valgeirsdóttir GA 7 F 44 38 82 10 84 85 82 251 35
15 Arna Rún Kristjánsdóttir GM 9 F 38 42 80 8 90 86 80 256 40
16 Eva Karen Björnsdóttir GR 6 F 45 40 85 13 87 85 85 257 41
17 Amanda Guðrún Bjarnadóttir GHD 7 F 45 41 86 14 88 83 86 257 41
18 Ragnheiður Sigurðardóttir GKG 8 F 50 43 93 21 88 85 93 266 50