Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2016 | 18:30

Eimskipsmótaröðin 2016 (2): Guðmundur og Haraldur með lægstu forgjöfina á Símamótinu í karlaflokki og Guðrún Brá í kvennaflokki

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK er með lægstu forgjöf kvenna í 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar, Símamótinu, sem hefst á morgun, föstudaginn 3. júní 2016,  á Hlíðavelli í Mosfellsbæ.

Meðalforgjöf keppenda í kvennaflokki er 4,2 en alls 21 kylfingur skráður til leiks í kvennaflokki.

Forgjafarmörkin á Eimskipsmótaröðina 2016 í kvennflokki er 8,5.

Sjá má röð forgjafarlægstu kvenkylfingana á Símamótinu hér að neðan: 

1-a-Gunna-bra- Screen-Shot-2016-06-01-at-9.59.14-AM-748x1024

GR-ingarnir Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús eru með lægstu forgjöfina í karlaflokki á Símamótinu sem hefst á morgun, föstudaginn 3. júní 2016.

Meðalforgjöf keppenda í karlaflokki er 2,3 en alls eru 84 keppendur skráðir til leiks í karlaflokki.

Til samanburðar var meðalforgjöfin á Egils-Gullmótinu sem fram fór fyrir hálfum mánuði á Strandarvelli á Hellu 2,7.

Forgjafarmörkin á Eimskipsmótaröðina 2016 er 5,5 en fjórir keppendur eru fyrir ofan þau viðmið þar sem þeir tryggðu sér keppnisrétt í forkeppni sem fór fram s.l. mánudagu

Alls eru 16 karlar með 0 eða lægri forgjöf en forgjafarlistinn lítur þannig út fyrir Símamótið 2016.

Hér má sjá forgjafarlægstu karlkylfingana á Símamótinu: 

(Heimild: GSÍ)

Screen-Shot-2016-06-01-at-9.49.33-AM-659x1024