Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2015 | 09:00

Eimskipsmótaröðin: Miklar breytingar fyrirhugaðar

Miklar breytingar eru fyrirhugaðar á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Starfshópur á vegum Golfsambandsins skilaði af sér tillögu um framtíðarsýn fyrir Eimskipsmótaröðina til næstu þriggja ára og var niðurstaða nefndarinnar kynnt á þingi Golfsambandsins  (21. – 22. nóvember 2015 s.l.)

Tillöguna má sjá í heild sinni með því að SMELLA HÉR: 

Með það fyrir augum að stækka mótaröðina og bæta umfang hennar, leggur starfshópurinn til margar breytingar. Sumar þessara breytinga kunna að fela í sér ákveðin fráhvörf frá núverandi fyrirkomulag á meðan aðrar tillögur fela eingöngu í sér skerpingu á því sem áður hefur verið gert.

Mótin á Eimskipsmótaröðinni verða alls átta en til samanburðar voru mótin sex á síðasta keppnistímabili. Á árinu 2016 verður sú undantekning að sex mót telja til stigameistaratitla á Eimskipsmótaröðinni en frá og með árinu 2017 munu alls átta mót telja á stigalistanum.

Keppnistímabil hvers árs hefst í lok ágúst og lýkur í sama mánuði, ári síðar.

Tímabilið hefst á tveimur mótum að hausti, því fylgja svo tvö mót að vori árið eftir og lýkur á fjórum mótum yfir hásumarið.

Fjöldi keppenda í haust- og vormótum, auk Íslandsmótsins í golfi, verður með sama sniði og í dag en færri keppendur verða í öðrum mótum.

Tvö ný mót bætast við mótaröðina. Þátttakendafjöldi í þeim verður takmarkaður mun hann taka mið af stöðu keppenda á heimslista atvinnu- og áhugamanna og stigalista GSÍ á hverjum tíma.

Signý Arnórsdóttir, GK og Þórður Rafn Gissurarson, GR Íslandsmeistarar í höggleik 2015. Mynd: GSÍ

Signý Arnórsdóttir, GK og Þórður Rafn Gissurarson, GR Íslandsmeistarar í höggleik 2015. Mynd: GSÍ

Golfklúbbur Reykjavíkur og Golfklúbburinn Keilir hafa báðir boðist til að skuldbinda sig til þess að vera með árleg mót á mótaröðinni næstu þrjú ár.

Hámarksforgjöf í mót á mótaröðinni verður 5,5 hjá körlum og 8,5 hjá konum. Skoðuð verður sú hugmynd að ljúka mótum á laugardegi og leika seinnipart fimmtudags og föstudags í þeim mótum þar sem keppendafjöldi er takmarkaður.

Fallið var frá þeirri tillögu að Íslandsmótið í golfi fari fram á höfuðborgarsvæðinu í fjögur skipti af fimm á hverju fimm ára tímabili.

Mót                                          Tímabil                          Fjöldi keppenda

Eimskip 1                                    Ágúst                                  144

Eimskip 2                                    September                         144

Eimskip 3                                    Maí                                      144

Eimskip 4                                    Maí/Júní                            144

Íslandsmótið í holukeppni      Júní                                      64 karlar – 24 konur

Eimskip 6                                    Júlí                                       36 karlar – 18 konur

Íslandsmótið í golfi                   Júlí                                       144

Eimskip 7                                     Ágúst                                   33 karlar – 15 konur

Frá 4. móti Eimskipsmótaraðarinnar á Jaðrinum á Akureyri. Mynd: GSÍ

Frá 4. móti Eimskipsmótaraðarinnar á Jaðrinum á Akureyri. Mynd: GSÍ

Hámarksforgjöf í mót á mótaröðinni verður 5,5 hjá körlum og 8,5 hjá konum. Skoðuð verður sú hugmynd að ljúka mótum á laugardegi og leika seinnipart fimmtudags og föstudags í þeim mótum þar sem keppendafjöldi er takmarkaður.

Keppnistímabilið 2016 verður með eftirfarandi hætti:

Mót                                                                     Dagsetning

Eimskip 1                                                               20.-22. maí

Eimskip 2                                                               3.-5. júní

Íslandsmótið í holukeppni                                 16.-19. júní

Eimskip 4                                                               15.-17. júlí

Íslandsmótið í golfi                                              21.-23. júlí

Eimskip 6 / Lokamót                                           19.-21. ágúst

Íslandsmótið í holukeppni

Hópurinn leggur til eftirfarandi breytingar á fyrirkomulagi mótsins.
a. Keppendur í karlaflokki verði 64 og raðast í 16 riðla.
b. Keppendur í kvennaflokki verði 24 og raðast í 8 riðla.
c. Íslandsmeistari í holukeppni fyrra árs, þrír efstu íslendingarnir á heimslista
atvinnumanna og þrír efstu kylfingarnir á heimslista áhugamanna eiga
þátttökurétt í mótinu. Á þetta bæði við karla- og kvennaflokk.
d. Að frátöldum þeim kylfingum sem eiga sjálfkrafa þátttökurétt skv. c.-lið
ræður staðan á stigalistanum talið frá og með síðasta Íslandsmóti í holukeppni.
e. Í stað stöðu leikmanna á stigalistanum ræður forgjöf þátttakenda því í
hvaða röð leikmenn raðast í riðla.

Sveitakeppni GSÍ færð fram á fjórðu helgina í júní

Sveitakeppni GSÍ er eitt af stærstu mótum sumarsins á hverju keppnistímabili. Mótið er feikilega vinsælt meðal keppenda. Það er einróma álit starfshópsins að auka megi veg þessarar keppni verulega og um leið auka áhuga bæði almennra kylfinga og fjölmiðla á mótinu.

Sú hefð hefur skapast að leikið sé í Sveitakeppni GSÍ aðra helgi í ágústmánuði. Það jákvæða vandamál hefur komið upp að sífellt fleiri íslenskir karlkylfingar hafa áunnið sér keppnisrétt í Evrópumóti einstaklinga á undanförnum misserum sem skarast á við Sveitakeppni GSÍ.

Lagt er til að gerðar verði eftirfarandi breytingar á Sveitakeppni GSÍ:
Nafni keppninnar verði breytt, gerðar verði breytingar á tímasetningu keppninnar og er lagt til að leikið verði í öllum deildum karla og kvenna fjórðu helgi júnímánaðar.
Sveitakeppni eldri kylfinga og unglinga fari fram aðra helgi ágústmánaðar. Kanna skal þann möguleika að undanúrslit og úrslit í efstu deildum karla og kvenna fari fram á sama velli. Það gefur golfáhugamönnum, klúbbfélögum, áhorfendum og fjölmiðlum betra tækifæri til að fylgjast með.

Texti: GSÍ