Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 15. 2014 | 14:55

Eimskipsmótaröðin (6): Valdís Þóra efst e. 1. dag í kvennaflokki

Það er Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, sem leiðir á heimavelli sínum á 6. og næstsíðasta mótinu í ár á Eimskipmótaröðinni.

Valdís Þóra lék á 1 undir pari, 71 höggi.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, sem var í forystu eftir leiknar 9 holur, er í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir Valdísi Þóru þ.e. á sléttu pari, 72 höggum.

Í 3. sæti eftir 1. dag er síðan Þórdís Geirsdóttir, GK á 3 yfir pari, 75 höggum.

Staðan eftir 1. dag í kvennaflokki á 6. móti Eimskipsmótaraðarinnar er eftirfarandi: 

1 Valdís Þóra Jónsdóttir GL -1 F 35 36 71 -1 71 71 -1
2 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR -1 F 34 38 72 0 72 72 0
3 Þórdís Geirsdóttir GK 3 F 36 39 75 3 75 75 3
4 Signý Arnórsdóttir GK 2 F 37 39 76 4 76 76 4
5 Karen Guðnadóttir GS 2 F 37 40 77 5 77 77 5
6 Sunna Víðisdóttir GR 0 F 38 39 77 5 77 77 5
7 Anna Sólveig Snorradóttir GK 3 F 39 40 79 7 79 79 7
8 Tinna Jóhannsdóttir GK 2 F 40 40 80 8 80 80 8
9 Sara Margrét Hinriksdóttir GK 6 F 44 39 83 11 83 83 11
10 Særós Eva Óskarsdóttir GKG 5 F 45 41 86 14 86 86 14
11 Helena Kristín Brynjólfsdóttir GKG 15 F 43 44 87 15 87 87 15
12 Jóna Sigríður Halldórsdóttir GR 10 F 46 42 88 16 88 88 16
13 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 2 F 49 41 90 18 90 90 18
14 Hrafnhildur Guðjónsdóttir GR 13 F 51 46 97 25 97 97 25