Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2013 | 13:45

Eimskipsmótaröðin (5): Guðjón Henning með frábæran örn

„Heimamaðurinn“ Guðjón Henning Hilmarsson, GKG tekur þátt í 5. móti Eimskipsmótaraðarinnar á Leirdalsvelli, heimavelli sínum í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Hann er nú þegar þetta er ritað kl. 13:38 búinn að spila 15 holur og hefir tekið forystuna í karlaflokki á 3 undir pari.

Forystunni náði Guðjón Henning með glæsierni á par-5 14. braut Leirdalsvallar.

Að öðru leyti er Guðjón Henning auk arnarins búinn að fá 2 fugla, 11 pör og 1 skolla og 3 holur óspilaðar.

Tekst Guðjóni Henning að halda forystunni?

Fylgist með Símamótinu með því að SMELLA HÉR: