Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2013 | 22:30

Eimskipsmótaröðin (4): Skemmtileg kylfu-cover á Íslandsmótinu í höggleik 2013

Það voru ýmis skemmtileg kylfu-cover sem urðu á vegi Golf1 á Íslandsmótinu í höggleik í dag.

Eitt þeirra er í eigu Karenar Guðnadóttur, GS, en hún segist hafa átt cover-ið frá því hún var 14-15 ára.  Coverið er risastórt og loðið og líkist litlum hundi.

Karen sagðist ekki oft vera með það í pokanum, sem skýrir sig sjálft því það verður væntanlega heldur óskemmtilegt og tætt í rigningu og hætta  á að það skemmist.

Karen að knúsa kylfucover-ið sitt sem bara er dregið fram á góðviðrisdögum, sem þeim sem var í dag.

Karen að knúsa kylfucover-ið sitt sem bara er dregið fram á góðviðrisdögum, sem þeim sem var í dag. Mynd: Golf 1

Annað skemmtilegt cover var á dræver Þórðar Rafns Gissurarsonar, GR, en sjá má langar leiðir að hann er aðdáandi „rauðu djöflanna“ þ.e. knattspyrnuliðs Manchester United.

Þórður Rafn með rauðan djöful í pokanum!

Þórður Rafn með rauðan djöful í pokanum! Mynd: Golf1