Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2013 | 15:30

Eimskipsmótaröðin (4): Ólafía Þórunn og Valdís Þóra efstar og jafnar á 17. holu

Íslamdsmótið í höggleik í kvennaflokki virðist ætla að ráðast á síðustu holunum.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, fékk glæsilega fugla á par-4 15. braut og par-5 16. brautina og komst þar með í 9 yfir parið á  Ár-lykkju Korpunnar.

Ólafía Þórunn fékk síðan glæsilegt par á par-4 17. brautina og hélt skori sínu í 9 yfir pari. Stáltaugar þar hjá Ólafíu Þórunni.

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, sem búin var að vera í forystu frá 14. braut fékk slæman skolla á 17. brautinni og fór þar með úr forystu þ.e. 8 yfir pari í 9 yfir par.

Staða efstu stúlkna er sú að þegar 17 holur hafa verið spilaðar eru Ólafía Þórunn og Valdís Þóra efstar og jafnar á 9 yfir pari.  Í 3. sæti er Sunna Víðisdóttir, GR,  á samtals 10 yfir pari og í 4. sæti er Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, á samtals 11 yfir pari.