Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2012 | 21:05

Eimskipsmótaröðin (3): Úrslit í 3. umferð í kvennaflokki – Anna Sólveig, Ingunn, Tinna og Signý í undanúrslit og úrslit í 8 manna undankeppni í karlaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni – Birgir Leifur, Haraldur Franklín, Hlynur Geir og Rúnar í undanúrslit- myndasería

Eftir hádegið, í dag 23. júní 2012,  2. keppnisdag á Íslandsmótinu í holukeppni,i fór fram 3. umferð í kvennaflokki og 8 manna undankeppni í karlaflokki.  8 manna úrslitin í karlaflokki voru æsispennandi og eins hverjar kæmust í 4 kvenna úrslitin á morgun. Það eru Anna Sólveig Snorradóttir, GK, Ingunn Gunnarsdóttir, GKG Signý Arnórsdóttir og Tinna Jóhannsdóttir, GK, sem eru komnar áfram.  Í karlaflokki keppa Hlynur Geir Hjartarson, GOS Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, Haraldur Franklín Magnús, GR og Rúnar Arnórsson, GK, sem komnir eru áfram. Hér má sjá myndaseríu frá 2. keppnisdegi í Íslandsmótinu í holukeppni: EIMSKIPSMÓTARÖÐIN (3): ÍSLANDSMÓTIÐ Í HOLUKEPPNI HJÁ GKG – 23. JÚNÍ 2012

Úrslit í 8 manna úrslitunum í karlaflokki eru eftirfarandi:

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, vann Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG, 1&0
Hlynur Geir Hjartarson, GOS, vann Guðjón Henning Hilmarsson, GKG, 3&2
Rúnar Arnórsson, GK, vann Tryggva Pétursson, GR, 5&3
Haraldur Franklín Magnús, GR, vann Andra Þór Björnsson, GR, á 21. holu.

Þeir sem mætast í undanúrslitunum í karlaflokki eru eftirfarandi, 3. og síðasta keppnisdag á morgun eru:

Hlynur Geir Hjartarson, GOS – Birgir Leifur Hafþórsson, GKG
Haraldur Franklín Magnús, GR – Rúnar Arnórsson, GK

Úrslit í 3. umferð í kvennaflokki eru eftirfarandi:

Riðill 1:
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, vann Ingunni Einarsdóttur, GKG, 3&2

Tinna Jóhannsdóttir sat hjá.

Riðill 2:
Ingunn Gunnarsdóttir, GKG, vann Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, GK, 1&0
Karen Guðnadóttir, GS, vann Rögnu Björk Ólafsdóttur, GK, 2&1

Riðill 3:
Berglind Björnsdóttir, GR, vann Þórdísi Geirsdóttur, GK, 6&4
Anna Sólveig Snorradóttir, GK, vann Jódísi Bóasdóttur, GK, 1&0

Riðill 4:
Heiða Guðnadóttir, GKJ, vann Hansínu Þorkelsdóttur, GKG, 5&4
Sunna Víðisdóttir, GR, vann Signýju Arnórsdóttur, GK, á 20. holu

Þær sem mætast í undanúrslitunum í kvennaflokki eru eftirfarandi, 3. og síðasta keppnisdag á morgun eru:

Tinna Jóhannsdóttir, GK – Signý Arnórsdóttir, GK
Ingunn Gunnarsdóttir, GKG – Berglind Björnsdóttir, GR