Signý Arnórsdóttir, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2012 | 12:05

Eimskipsmótaröðin (3): Anna Sólveig Snorradóttir og Signý Arnórsdóttir keppa um Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni

Það eru þær Anna Sólveig Snorradóttir, GK og Signý Arnórsdóttir, GK sem keppa til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni.

Anna Sólveig Snorradóttir, GK (t.h.) vann klúbbfélaga sinn Jódísi Bóasdóttur í gær í 3. umferð. Mynd: Golf 1

Anna Sólveig sigraði „heimakonuna“ Ingunni Gunnarsdóttur nokkuð stórt 5&4 nú fyrir stuttu í 4 kvenna úrslitunum og Signý Arnórsdóttur hafði betur gegn klúbbfélaga sínum, Tinnu Jóhannsdóttur, GK, 3&2.

Í undankeppninni vann Anna Sólveig, Berglindi Björnsdóttur, GR; Þórdísi Geirsdóttur, GK og Jódísi Bóasdóttur, GK; en  Signý  vann þær Hansínu Þorkelsdóttur, GKG og Heiðu Guðnadóttur, GKJ.