Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2018 | 22:00

Eimskipsmótaröðin 2018 (8): Guðmundur Ágúst m/ vallarmet – Guðrún Brá efst í kvennaflokki!

Það er mikil spenna sem ríkir á Securitasmótinu þar sem keppt er um GR-bikarinn á Eimskipsmótaröðinni. Mótið er jafnframt lokamót Eimskipsmótaraðarinnar 2017-2018.

Frábært golf var leikið á Grafarholtsvelli í dag í karlaflokknum þar sem Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, setti vallarmet með því að leika á 63 höggum eða -8. Hann er efstur í karlaflokknum á -12 samtals og er með fimm högga forskot á Íslandsmeistarann Axel Bóasson úr GK sem lék á 65 höggum í dag og átti vallarmetið í stutta stund í dag.

Í kvennaflokknum eru miklar sviptingar. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK er með eitt högg í forskot á Helgu Kristínu Einarsdóttur, GK. Guðrún er á +5 samtals en hún var sjö höggum á eftir Helgu Kristínu eftir 1. keppnisdaginn. Kylfingar úr Keili raða sér í þrjú efstu sætin í kvennaflokknum en Anna Sólveig Snorradóttir er á +7 samtals fyrir lokahringinn.

Staða efstu kylfinga í karlaflokki eftir 2. keppnisdag:

1 Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR (67-63) 130 högg (-12)
2. Axel Bóasson, GK (70-65) 135 högg (-7)
3.-5. Andri Þór Björnsson, GR (70-70) 140 högg (-2)
3.-5. Ólafur Björn Loftsson, GKG (70-70) 140 högg (-2)
3.-5. Rúnar Arnórsson, GK (68-72) 140 högg (-2)
6.-7.Fannar Ingi Steingrímsson, GHG (71-70) 141 högg (-1)
6.-7. Kristófer Orri Þórðarson, GKG (70-71) 141 högg (-1)
8. Andri Már Óskarsson, GHR (70-72) 142 högg (par)
9.-10. Aron Snær Júlíusson, GKG (73-71) 144 högg (+2)
9.-10. Hákon Örn Magnússon, GR (70-74) 144 högg (+2)

Þetta var mjög „solid“ hringur. Ég sló mikið með 3-tré af teig og ég var í fuglafærum út um allt. Setti niður góð pútt á 12., 13. og 14. og náði þar góðri skorpu. Það er gaman að spila á Grafarholtsvelli á þessum árstíma, flatirnar eru góðar en ekki mjög hraðar, og ég var því mjög ákveðinn í púttunum í dag,“ sagði Guðmundur Ágúst eftir hringinn.

Staða efstu kylfinga í kvennaflokki eftir 2. keppnisdag:

1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (75-72) 147 högg (+5)
2. Helga Kristín Einarsdóttir, GK (68-80) 148 högg (+6)
3. Anna Sólveig Snorradóttir, GK (77-72) 149 högg (+7)
4. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG (80-71) 151 högg (+9)
5. Berglind Björnsdóttir, GR (77-75) 152 högg (+10)

Texti og mynd: GSÍ