Frændsystkinin og tveir bestu kylfingar landsins: Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir í Keili. Þau unnu 1. mótið styrktu af Erninum á Eimskipsmótaröðinni 2011. Mynd: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2018 | 19:00

Eimskipsmótaröðin 2018 (7): Axel og Guðrún Brá efst e. 1. dag

Íslandsmótið í höggleik hófst á Vestmannaeyjavelli í dag, en Golfklúbburinn í Vestmannaeyjum fagnar 80 ára afmæli sínu og er hann 3. elsti golfklúbbur Íslands, stofnaður 1938.

Íslandsmótið í höggleik stendur dagana 26.-29. júlí 2018 og verða nýir Íslandsmeistarar krýndir nk. sunnudag.

Efitr fyrsta dag eru systkinabörnin frá Hafnarfirði Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir  úr Golfklúbbnum Keili, efst í karla og kvennaflokki.

Í karlaflokki voru 12 sem brutu 70 á Vestmannaeyjavelli og sá sem efstur er Axel Bóasson, lék á stórglæsilegum 5 undir pari, 65 höggum; fékk 1 örn (á par-5 4. holuna), 5 fugla og 2 skolla.

Í kvennaflokki voru 14, sem brutu 80 á Vestmannaeyjavelli og sú sem efst er Guðrún Brá lék 1. hring á sléttu pari, 70 glæsihöggum!!! Guðrún Brá fékk 4 fugla og 4 skolla.

Sjá má stöðu efstu manna í karlaflokki á Íslandsmótinu í höggleik 2018 eftir 1. dag hér að neðan:

1 Axel Bóasson GK -5 F 31 34 65 -5 65 65 -5
2 Björn Óskar Guðjónsson GM -3 F 32 34 66 -4 66 66 -4
3 Aron Emil Gunnarsson GOS 3 F 34 32 66 -4 66 66 -4
4 Örlygur Helgi Grímsson GV 0 F 36 31 67 -3 67 67 -3
5 Hlynur Bergsson GKG -2 F 33 34 67 -3 67 67 -3
6 Arnór Ingi Finnbjörnsson GR -1 F 35 32 67 -3 67 67 -3
7 Viktor Ingi Einarsson GR -1 F 33 35 68 -2 68 68 -2
8 Henning Darri Þórðarson GK -2 F 34 34 68 -2 68 68 -2
9 Andri Már Óskarsson GHR -2 F 34 34 68 -2 68 68 -2
10 Gísli Sveinbergsson GK -4 F 32 37 69 -1 69 69 -1
11 Birgir Guðjónsson GJÓ 1 F 35 34 69 -1 69 69 -1
12 Sigurður Bjarki Blumenstein GR -1 F 38 31 69 -1 69 69 -1

Sjá má stöðu efstu kvenna í kvennaflokki á Íslandsmótinu í höggleik 2018 eftir 1. dag hér að neðan: 

1 Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK -1 F 36 34 70 0 70 70 0
2 Saga Traustadóttir GR 2 F 35 37 72 2 72 72 2
3 Helga Kristín Einarsdóttir GK 3 F 36 37 73 3 73 73 3
4 Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 6 F 39 36 75 5 75 75 5
5 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir GR 7 F 37 38 75 5 75 75 5
6 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir GR 8 F 39 36 75 5 75 75 5
7 Arna Rún Kristjánsdóttir GM 8 F 36 40 76 6 76 76 6
8 Heiðrún Anna Hlynsdóttir GOS 6 F 39 37 76 6 76 76 6
9 Berglind Björnsdóttir GR 3 F 38 38 76 6 76 76 6
10 Sigurlaug Rún Jónsdóttir GK 6 F 37 40 77 7 77 77 7
11 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 1 F 39 39 78 8 78 78 8
12 Hulda Clara Gestsdóttir GKG 4 F 38 40 78 8 78 78 8
13 Andrea Björg Bergsdóttir GKG 3 F 42 36 78 8 78 78 8
14 Ragnhildur Sigurðardóttir GR 3 F 41 38 79 9 79 79 9