SAMSUNG DIGITAL CAMERA
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2018 | 19:00

Eimskipsmótaröðin 2018 (7): Guðrún Brá leiðir f. lokahringinn

Þriðja degi á Íslandsmótinu í höggleik er nú lokið.

Efst í kvennaflokki er Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK en hún lék 3. hring á 2 yfir pari, 72 höggum. Hún á heil 4 högg á næsta keppanda, er samtals búin að spila á 7 yfir pari.

Í 2. sæti er klúbbfélagi hennar Helga Kristín Einarsdóttir, GK á samtals 11 yfir pari.

Í 3. sæti ers síðan Ragnhildur Sigurðardóttir, GR, sem hefir leikið sífellt betur eftir því sem líður á mótið, er nú samtals  á 14 yfir pari.

Anna Sólveig Snorradóttir, GK, sem búin var að tylla sér í 2. sætið í gær eftir 2. hring eftir að vera búin að setja nýtt vallarmet af bláum, lék með 20 högga sveiflu í dag og féll þar við niður í 8. sætið.

Staðan fyrir lokahringinn, sem leikinn verður á morgun í kvennaflokki á Íslandsmótinu í höggleik 2018 er eftirfarandi:

1 Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK -1 F 35 37 72 2 70 75 72 217 7
2 Helga Kristín Einarsdóttir GK 3 F 37 38 75 5 73 73 75 221 11
3 Ragnhildur Sigurðardóttir GR 3 F 34 36 70 0 79 75 70 224 14
4 Saga Traustadóttir GR 2 F 38 41 79 9 72 76 79 227 17
5 Andrea Ýr Ásmundsdóttir GA 6 F 37 35 72 2 84 74 72 230 20
6 Hulda Clara Gestsdóttir GKG 4 F 39 38 77 7 78 75 77 230 20
7 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 1 F 36 46 82 12 78 70 82 230 20
8 Anna Sólveig Snorradóttir GK 4 F 43 42 85 15 80 65 85 230 20
9 Heiða Guðnadóttir GM 6 F 40 40 80 10 80 71 80 231 21
10 Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 6 F 36 40 76 6 75 81 76 232 22
11 Eva Karen Björnsdóttir GR 6 F 40 35 75 5 81 78 75 234 24
12 Berglind Björnsdóttir GR 3 F 41 37 78 8 76 80 78 234 24
13 Amanda Guðrún Bjarnadóttir GHD 6 F 36 42 78 8 80 76 78 234 24
14 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir GR 8 F 39 39 78 8 75 81 78 234 24
15 Arna Rún Kristjánsdóttir GM 8 F 35 43 78 8 76 80 78 234 24
16 Heiðrún Anna Hlynsdóttir GOS 6 F 38 40 78 8 76 81 78 235 25
17 Stefanía Kristín Valgeirsdóttir GA 7 F 40 43 83 13 80 73 83 236 26
18 Árný Eik Dagsdóttir GKG 7 F 39 39 78 8 80 79 78 237 27
19 Sigurlaug Rún Jónsdóttir GK 6 F 39 44 83 13 77 79 83 239 29