Eimskip, mikill styrktaraðili golfs á Íslandi. Mynd: Golf 1. Eimskipsmótaröðin 2015 (4): Úrslit í 8 manna undanúrslitum
Það er ljóst hvaða kylfingar mætast í undanúrslitum í kvennaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni á Eimskipsmótaröðinni. Mótið fer fram á Jaðarsvelli á Akureyri og voru aðstæður góðar í dag líkt og í gær.
Signý Arnórsdóttir úr GK og Heiða Guðnadóttir GM eigast við en Signý hefur tvívegis sigrað í þessari keppni en Heiða aldrei. Í hinni undanúrslitaviðureigninni leika Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Anna Sólveig Snorradóttir úr GK.
Ólafía er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi en hún lagði Tinnu Jóhannsdóttur úr GK í morgun í riðlakeppninni í úrslitaleik um hvor þeirra færi í undanúrslit. Tinna hafði titil að verja á mótinu.
Það er ljóst að nýtt nafn verður skrifað á Íslandsmeistarabikarinn í holukeppni í karlaflokki. Benedikt Sveinsson úr Keili sló út Kristján Þór Einarsson úr GM sem hafði titil að verja í átta manna úrslitum í dag á Jaðarsvelli á Akureyri.
Gríðarleg spenna var í átta manna úrslitunum og fóru tvær viðureignir í bráðabana. Úrslitin í viðureign Benedikts og Kristjáns réðust á 21. holu.
Það tók sinn tíma að útklá viðureignina hjá Stefáni Má Stefánssyni úr GR og heimamanninum Eyþóri Hrafnari Ketilssyni úr GA. Stefán hafði að lokum betur á 23. holu með því að fá par. Stefán tapaði í undanúrslitum í fyrra gegn Bjarka Péturssyni í þessari keppni.
Axel Bóasson úr Keili hafði betur gegn félaga sínum úr Keili, Sigurþóri Jónssyni – 4/3.
Theodór Emil Karlsson úr GM hafði betur gegn Daníel Hilmarssyni úr GKG í hörkuviðureign, 2/0.
Axel og Stefán Már mætast í undanúrslitum, og Benedikt leikur gegn Theodóri. Undanúrslitaleikirnir fara fram fyrir hádegi á sunnudag. Sigurvegararnir mætast í úrslitum eftir hádegi á sunnudag og þeir sem tapa leika um bronsið á sama tíma.
Úrslitin í 8-manna viðureignum dagsins.
Kristján Þór Einarsson GM
Benedikt Sveinsson GK – Benedikt sigraði á 21. holu.
Theodór Emil Karlsson GM 2/0
Daníel Hilmarsson GKG
Stefán Már Stefánsson GR – Stefán sigraði á 23. holu.
Eyþór Hrafnar Ketilsson GA
Axel Bóassson GK 4/3
Sigurþór Jónsson GK
Undanúrslitaleikirnir fara fram á sunnudagsmorgun og úrslitaleikirnir fara fram eftir hádegi.
Skor keppenda og úrslit úr leikjum má sjá með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

