Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 14. 2015 | 20:05

Eimskipsmótaröðin 2015 (3): Öruggur sigur hjá Guðrúnu Brá!!!

Það hefur oft verið mitt hlutskipti að enda í öðru sæti og það er gott að breyta því með svona sigri,” sagði Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili eftir að hún landaði sigri á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni í dag á Hlíðavelli. Sigur Guðrúnar var nokkuð öruggur en hún lék af yfirvegun á lokahringnum eða einu höggi yfir pari við erfiðar aðstæður eða 73 höggum.

Guðrún Brá lék samtals á +7 samtals og sigraði með sex högga mun. Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR varð þriðja á +13 og Berglind Björnsdóttir úr GR varð þriðja á +14.

Síðustu tvær vikur hafa verið góðar hjá Guðrúnu Brá sem sigraði í einstaklingskeppninni á Smáþjóðaleikunum fyrir viku síðan. „Það eru æfingarnar á undanförnum vikum sem eru að skila sér – og ég stefni á að halda áfram á sömu braut,“ bætti Guðrún Brá við en næstu tvö mót á Eimskipsmótaröðinni eru Íslandsmótið í holukeppni og sjálft Íslandsmótið.

1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 223 högg (73-77-73) + 7
2. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 229 högg (78-75-76) +13
3. Berglind Björnsdóttir, GR 230 högg (81-74-75) + 14
4. Signý Arnórsdóttir, GK 232 högg (82-78-72) + 16
5. Ólöf María Einarsdóttir, GHD 236 högg (76-79-81) + 20
6. – 8. Saga Traustadóttir, GR 242 högg (81-84-77) + 26
6. – 8. Ingunn Einarsdóttir, GKG 242 högg (81-82-79)+ 26
6. – 8. Tinna Jóhannsdóttir, GK 242 högg (85-78-79) + 26