Kristján Þór Einarsson, GKJ. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 14. 2015 | 20:00

Eimskipsmótaröðin 2015 (3): Kristján Þór sigraði!

Ég hugsaði bara um að koma boltanum á flötina í bráðabananum. Það var ljúft að sjá boltann fara ofaní fyrir parinum,“ sagði Kristján Þór Einarsson eftir sigurinn á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni sem lauk með bráðabana á Hlíðavelli í Mosfellbæ síðdegis.
Kristján Þór fékk par á 1. holu Hlíðavallar í bráðabananum gegn Guðjóni Henning Hilmarssyni úr GKG en þeir léku hringina þrjá á einu höggi yfir pari samtals. Kristján Þór lék lokahringinn á 69 höggum eða -3 en Guðjón Henning var á 75 höggum á lokahringnum.
Guðjón náði ekki að tryggja sér parið í bráðabananum.
Kristján Þór sigraði á þremur mótum í fyrra á Eimskipsmótaröðinni og hann hefur titil að verja á Íslandsmótinu í holukeppni sem fram fer um næstu helgi á Jaðarsvelli á Akureyri. „Ég hef titil að verja og það er alltaf markmiðið hjá mér að mæta til leiks til þess að sigra,“ bætti Kristján við.
Þetta er í fyrsta sinn sem Eimskipsmótaröðin fer fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar og tókst mótið vel í alla staði á frábærum velli.
Staða efstu kylfinga í karlaflokki:
1. Kristján Þór Einarsson, GM 217 högg (71-77-69) +1
2. Guðjón Henning Hilmarsson, GKG (73-69-75) + 1
3. – 4. Heiðar Davíð Bragason, GHD (72-74-72) +2
3. – 4. Björn Óskar Guðjónsson, GM (77-70-71) +2
5. Arnór Snær Guðmundsson, GHD (78-71-70) +3