Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2014 | 18:01

Eimskipsmótaröðin 2014 (4): Systur og frænkur komnar í 4 manna úrslit á Íslandsmótinu í holukeppni

Tvær Keiliskonurnar eru nú komnar í undanúrslitin á Íslandsmótinu í holukeppni, en það eru frænkurnar Guðrún Brá Björgvinsdóttir og  Tinna Jóhannsdóttir.

Eins eru systurnar Heiða Guðnadóttir, GKJ  og Karen Guðnadóttir, GS, komnar í undanúrslitin.

Leikir í fjórðungsúrslitunum á Íslandsmótinu í holukeppni fóru annars þannig:

1. leikur Heiða Guðnadóttir, GKJ  vann Sunnu Víðisdóttur, GR á 19. holu

2. leikur Karen Guðnadóttir, GK vann Signýju Arnórsdóttur, GK 1&0

3. leikur Tinna Jóhannsdóttir, GK vann Berglindi Björnsdóttur, GR 3&1

4. leikur Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK vann Ragnhildi Kristinsdóttur, GR 3&2

Spennandi leikir framundan í kvennaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni og um að gera að fjölmenna á Hvaleyrina á morgun og fylgjast með lokaviðureignunum, en einhver af ofangreindum 4 stendur uppi sem Íslandsmeistari í lok morgundagsins!

Í undanúrslitunum á morgun verður bæði systra- og frænkuslagur, því þessar mætast á morgun:

1. leikur Heiða Guðnadóttir, GKJ  g. Karenu Guðnadóttur, GS

2. leikur Tinna Jóhansdóttir, GK g. Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, GK