Eimskipsmótaröðin (2): Haraldur Franklín sigraði í Eyjum!!!
Haraldur Franklín Magnús, GR, Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni 2012, sigraði í dag á 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar, Securitas-mótinu úti í Eyjum.
Haraldur Franklín lék samtals á 1 undir pari, 209 höggum (67 70 72). Hann fékk 3 fugla, 10 pör og 5 skolla í dag, þegar svo virtist sem skýfall yrði í Vestmannaeyjum, en spilað var við erfiðar aðstæður, rigningu og kulda. Þetta er stórglæsilegur árangur hjá Haraldi Franklín!!!!
Í 2. sæti var Björgvin Sigurbergsson, GK, á sléttu pari aðeins 1 höggi á eftir Haraldi Franklín. Björgvin lék samtals á 210 höggum (67 72 71).
Þriðja sætinu deildu síðan heimamaðurinn Örlygur Helgi Grímsson, GV og Ragnar Már Garðarsson, GKG á samtals 1 yfir pari, hvor.
Í 5. sæti varð forystumaður gærdagsins Andri Þór Björnsson, GR á samtals 2 yfir pari og 4 kylfingar deildu síðan 6. sætinu á samtals 3 yfir pari þ.e.: Fannar Ingi Steingrímsson, GHG; Bjarki Pétursson, GB; Emil Þór Ragnarsson, GKG og Rúnar Arnórsson, GK.
Til þess að sjá lokastöðuna í heild SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
