
Eimskipsmótaröðin (2): Egils Gull mótið úti í Eyjum – Tinna, Signý og Arnar Snær í forystu kl. 16:30
Annað mótið á Eimskipsmótaröðinni í ár, Egils Gull, hófst í dag á Vestmannaeyjavelli. Þátttakendur eru 80, þar af 17 konur.
Ræsa átti út fyrstu kylfinga kl. 7:30, en vegna þess að fremur hvasst var framan af var ræsingu frestað til kl. 10:00. Skilyrði til golfleiks eru erfið vegna þess hversu hvasst er, en annars er bongóblíða úti í Eyjum og Vestmannaeyjavöllur í góðu ástandi.
Nú kl. 16:30 er staðan sú í kvennaflokki að Tinna Jóhannsdóttir, GK og Signý Arnórsdóttir, GK, eru í forystu, báðar eru búnar að spila á 3 yfir pari. Tinna á 9 holur eftir óspilaðar en Signý 3.
Í karlaflokki leiðir Arnar Snær Hákonarson, GR; er sem stendur sá eini sem búinn er að spila undir pari, eða 1 undir pari. Hann á 3 holur eftir óspilaðar og í 2. sæti er Björn Öder Ólason, GO, sem búinn er að spila 3 holur.
Fylgjast má með gangi mála í Vestmannaeyjum með því að SMELLA HÉR:
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1
- apríl. 10. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elín Illugadóttir —-– 10. apríl 2023
- apríl. 10. 2023 | 13:00 Masters 2023: Jon Rahm: „Þessi var fyrir Seve“
- apríl. 10. 2023 | 00:20 Masters 2023: Sam Bennett hlaut silfurbikarinn
- apríl. 9. 2023 | 23:00 Master 2023: Jon Rahm sigraði!!!
- apríl. 9. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hörður Hinrik Arnarson – 9. apríl 2023