Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2013 | 09:00

Dýr á golfvöllum: Golfklúbbur gagnrýndur fyrir að skjóta gæsir

Íbúar í bæ nokkrum í Worcestershire í  Englandi eru yfir sig reiðir út í golfklúbb á staðnum sem skotið hefir gæsir til þess að koma í veg fyrir gæsaskít sem skítar út golfbolta þeirra sem spila völlinn.

Skíturinn úr Kanada gæsunum þótti ógeðslegur

Skíturinn úr Kanada gæsunum þótti ógeðslegur

Sjö dauðar gæsir fundust á floti í vatni sem er á horni Bank House Hotel og golfklúbbsins.

Talsmaður klúbbsins sagði að gæsirnar hefðu verið flokkaðar sem skaðvaldar og mikið magn gæsaskíts á vellinum hefði bara farið í bág við allt hreinlæti.“

Hann hélt áfram: „Við fengum leyfi [til að skjóta gæsirnar] og við grisjum þær hér reglulega. Þannig höldum við Kanada gæsum í skefjum hér.“

„Til þess að halda þeim í skefjum verðum við að skjóta þær. Þessi sóðaskapur frá skít þeirra er ansi mikill. Þetta er bara óheilbrigt.“

„Við myndum enda með hundruðir fugla ef við héldum þeim ekki í skefjum. Þetta er ekkert sérstakt.“

Frá golfvellinum í Worcestershire

Frá golfvellinum í Worcestershire

Þrátt fyrir þetta eru íbúar í Worcestershire reiðir, sérstaklega yfir því að fuglarnir fljóti dauðir í vatni nálægt golfvellinum.

Einn íbúinn sagði þannig: „Það er bara sérstök tegund af „low life“ þ.e. skíthælum sem dæma þennan gæsaskít sem sóðalegan, en finnst það á hinn bóginn í lagi að láta rotnandi lík fuglanna vera fljótandi í vatninu.“

Sumir íbúar eru hins vegar á öndverðum meiði en skiptar skoðanir eru að sjálfsögðu í þessu máli sem öðru: „Án golfvallarins myndi hótelið verða að loka og hundruðir verða atvinnulausir,“ sagði einn íbúanna. „Fjöldi gæsanna á vellinum var orðinn þannig að það var næstum ekki hægt að spila 3 holur vallarins.“

Spurning hvað GR-ingar segðu ef einhver tæki sig til og skyti gæsirnar á Grafarholtsvelli?