Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2015 | 11:30

Dustin og Paulina eignast son

Dustin Johnson er nýbakaður faðir. Kærasta hans, Paulina Gretzky fæddi fyrsta barn þeirra mánudaginn 19. janúar 2015 í borg englanna, Los Angeles.

Margir eru þegar búnir að skýra  nýjasta heimsbúann, Wayne Johnson (eftir afanum Wayne Gretzky) og menn velta því fyrir sér hvort hann verði næsta stórstjarna í annaðhvort íshokkí (eins og afinn) eða golfinu (eins og pabbinn) 🙂

Umboðsmaður Dustin sendi frá sér fréttatilkynningu sem sjá má með því að  SMELLA HÉR:

„Paulina og ég erum ánægð að tilkynna fæðingu sonar okkar, en hann fæddist í Los Angeles mánudagsmorgunn,“ sagði í fréttatilkynningunni. „Bæði Paulina og barnið eru heilbrigð, hvílast og eru hress.“

„Við þökkum einlæglega fyrir alla þá ást og stuðning sem við höfum hlotið allsstaðar að og ætlum að tilkynna um frekari smáatriði á næstu dögum!“

Fréttatilkynningin birtist sama dag og langt viðtal Johnson  í Sports Illustrated, sem Golf 1 greindi frá hér fyrr og sjá má með því að SMELLA HÉR: