Dustin Johnson (DJ)
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2014 | 17:45

Dustin Johnson seldi Flórída heimili sitt fyrir $ 5.2 milljónir – snýr aftur til keppni snemma í febrúar 2015

Það fækkar einum kylfingnum sem lifir útúrsnúningi úr „hipp life“ þ.e. „JupLife“ niðri í Suður-Flórída (Jup Life er stytting yfir lífstíl þeirra, sem búa í Jupiter, Flórída og eru nægilega ríkir til að geta spilað golf öllum tímum).

Skv.  L.A. Times seldi PGA Tour kylfingurinn Dustin Johnson (DJ) heimili sitt í Jupiter, Flórída, fyrir $5.2 milljónir.

Húsið var byggt árið 2007 og er 7,860 ferfeta með 6 svefnherbergjum og 8 baðherbergjum – og auðvitað því sem fylgir „Jup Life“ þ.e. púttflöt, sundlaug og einkahöfn fyrir snekkju.

Sagt er að Johnson hafi keypt eignina á sínum tíma á  $3.7 milljónir.

Hann var búinn að setja $6.5 milljónir á hana, en sætti sig við  $5.2 milljónir út í hönd, en hann seldi eignina Alexandre Ismail, sem er forseti og framkvæmdastjóri Honeywell Automation and Control Solutions.

Johnson hefir verið í fríi frá PGA Tour frá því í júlí til þess að ná tökum á einkalífi sínu, m.a. vegna meintrar eiturlyfjaneyslu sinnar, eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.  Frá þeim tíma hafa m.a. fréttir borist af því að lögmenn hans hafi dregið að sér fé í eigu DJ, sem og að hann og kærasta hans, Paulina Gretzky eigi von á sínu fyrsta barni í ársbyrjun 2015.

Jafnframt upplýsti Tim Rosaforte, fréttamaður Golf Channel nú fyrr í þessari viku að Johnson muni snúa sér aftur að keppnisgolfi í byrjun febrúar á næsta ári, þ.e. á Farmers Insurance Open.