Ragnheiður Jónsdóttir | september. 14. 2017 | 16:45

DOY 2017: Sigurður Már og Amanda hafa lokið keppni

Sigurður Már Þórhallsson úr GR og Amanda Guðrún Bjarnadóttir úr GHD hafa lokið keppni á Duke of York mótinu sem fram fór á Royal Liverpool vellinum á Englandi. Sigurður Már endaði í 34. sæti og Amanda Guðrún í 45. sæti.

Sjá má lokastöðuna á Duke of York 2017 með því að SMELLA HÉR: 

Mótið er fyrir kylfinga á aldrinum 17-18 ára og bestu áhugakylfingar heims af báðum kynjum mæta þarna til leiks. Íslendingar hafa átt góðu gengi að fagna á þessu móti. Þrívegis hefur íslenskur kylfingur sigrað á þessu móti, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Ragnar Már Garðarsson og Gísli Sveinbergsson sigruðu 2010, 2012 og 2014.

Mótið er 54 holur og keppt í höggleik án forgjafar. Sigurður Már og Amanda Guðrún voru fulltrúar Íslands, þar sem þau fögnuðu sigri á Íslandsmótinu í holukeppni í sínum aldursflokki í Grindavík í sumar. Duke of York er eina unglingamótið í heiminum sem fer fram eingöngu á strandvöllum.

Margir þekktir kylfingar hafa tekið þátt á þessu móti og má þar nefna; Rory McIlroy, Matteo Manassero, Pablo Martin og Anna Nordqvist.

Prins Andrew eða Andrew Albert Christian Edward er sá sem hefur drifið þetta mót áfram enda er það kennt við hann.

Texti: GSÍ