Wayne Gretzky og DJ
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 30. 2016 | 16:45

DJ segir frá hvað tengdó sagði við hann e. sigurinn á US Open

Dustin Johnson (DJ) er trúlofaður Paulinu Gretzky, dóttur hokkígoðsagnarinnar Wayne Gretzky.

Wayne er mikill kylfingur sjálfur og er dyggur stuðningsmaður við golfferil tilvonandi tengdarsonar síns, DJ.

Hann horfði á DJ lyfta fyrsta risamótstitli sínum á Opna bandaríska í Oakmont.

DJ hefir nú birt það sem verðandi tengdó sagði við hann eftir fyrsta risamótssigur hans:

Hann var mjög hamingjusamur og mjög stoltur.  Að hann skuli hafa sagt þetta er ansi svalt. Hann var að segja mér að þetta hafi verið eitt af því mest frábæra, sem hann hefði séð, hvernig þetta gerðist og allt og að sjá mig klára verkið, þannig að, að þetta komi frá honum er ansi svalt. Þetta hafði mikla þýðingu fyrir mig vegna þess að hann hefir séð mikið af frábærum leik.“

Eitt af því mest frábæra sem hann hefir séð? Það er mikið hrós frá „The Great One“ (Wayne Gretzky)