DJ leiðir enn fyrir lokahring HSBC
Bandaríski kylfingurinn Dustin Johnson (DJ) leiðir enn fyrir lokahring HSBC heimsmótsins, sem hófst s.l. fimmtudag á Sheshan golfvellinum í Shanghaí, Kína.
Hann er samtals búinn að leika á 18 undir pari, 198 höggum (69 63 66).
Aðrir kylfingar eru að saxa á forystu DJ en hann hafði 5 högga forystu eftir 2. dag mótsins; nú er sú forysta hans aðeins 3 högg.
Það er Ian Poulter sem er að geysast upp skortöfluna, er nú einn í 2. sæti eftir frábæran 3. hring upp á 9 undir pari, 63 högg, þar sem hann fékk örn, 8 fugla og 1 skolla. Samtals er Poulter búinn að leika á 15 undir pari, 201 höggi (71 67 63).
Þótt undarlegt sé var Poulter ekki á besta skorinu á 3. hring – Það var þýski kylfingurinn Martin Kaymer sem lék á 10 undir pari, 62 höggum og setti nýtt vallarmet!!! Hringurinn góði kom Kaymer þó aðeins upp í 7. sæti, en hann var áður búinn að eiga „slaka“ 1. og 2. hringi upp á 70 og 74. Sjöunda sætinu deilir Kaymer síðan með þeim Bubba Watson og Boo Weekley en þeir hafa allir leikið á samtals 10 undir pari, 206 höggum, hver.
Í 3. sæti sem stendur er Graeme McDowell á samtals 14 undir pari, 202 höggum (69 69 64) en hann átti líka góðan 3. hring, sem þó fellur í skuggann á hinum tveimur þ.e. upp á 64 högg sem fleytti honum upp í 3. sætið.
Rory deilir 4. sætinu ásamt kanadíska kylfingnum Graeme DeLaet og Justin Rose, en allir hafa þeir leikið á samtals 12 undir pari, 204 höggum, hver.
Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag HSBC heimsmótsins SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
