Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2015 | 20:00

DJ gæti sigrað á Masters

Þetta eru spennandi tímar hjá Dustin Johnson (skammst. DJ).

Hann er að snúa aftur til keppnisgolfs eftir að hafa tekið sér 6 mánaða frí til þess að koma skikki á einkamál sín.

Og endurkoman hefir verið frábær, hann er með 1 sigur og 3 aðra topp árangra í beltinu en í 3 öðrum mótum  frá endurkomunni hefir hann ekki verið neðar en í 6. sæti.

DJ á þar að auki gullfallega konu, Paulinu Gretzky og þau virðast ástfanginn og allt leikur í lyndi hjá þeim og skv. mörgum reynsluboltum í golfinu s.s. Gary Player er gott einkalíf grundvöllur velgengni í golfinu.

DJ með Tatum og Paulina með Tatum

DJ með Tatum og Paulina með Tatum

Þann 19. janúar s.l. fæddist  DJ og Paulinu líka sonurinn Tatum og nýbakaðir feður virðast oft vera með eitthvað auka„boost“ í mótum!

Fötin valin á ungann

Fötin valin á ungann – sem veldur kátinu DJ

(Johnson) gæti allt eins sigrað  og Rory McIlroy (á Masters), einfaldlega vegna lengdar sinnar og þess að hann hefir verið að spila vel og sjálfstraust hans er mikið,„sagði Curtis Strange, fréttaskýrandi ESPN og fyrrum sigurvegari Opna bandaríska.