Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2012 | 03:00

DJ – Furyk – Snedeker og Stricker valdir í bandaríska Ryder Cup liðið

Seint í gærkvöldi var tilkynnt um hverjir myndu skipa bandaríska Ryder Cup liðið.

Bandaríska Ryder Cup liðið 2012 er svo skipað:

Keegan Bradley

Jason Dufner

Jim Furyk

Dustin Johnson

Zach Johnson

Matt Kuchar

Phil Mickelson

Webb Simpson

Brandt Snedeker

Steve Stricker

Bubba Watson

Tiger Woods

Davis Love III fyrirliði bandaríska Ryder Cup liðsins valdi þá Dustin Johnson, Jim Furyk, Brandt Snedeker og Steve Stricker í lið sitt.

Nýliðinn í bandaríska Ryder Cup liðinu er Brandt Snedeker.  Hann sagði eftirfarandi um símtalið sem hann hlaut frá Davis Love III um að hann hefði verið valinn:

„Þetta var svolítið stressandi. Ég hafði ekki hugmynd um þetta. Ég var svo spenntur að ég gat varla sofið í gær. Þetta er gríðarstórt fyrir feril minn.“

Um val sitt hafði Davis Love m.a. eftirfarandi að segja: „Ég held við höfum mikla breidd í liðinu í þetta sinn, meiri breidd en nokkru sinni… Það voru margir strákar sem spiluðu virkilega gott golf. Það er hægt að greina tölurnar upp og niður og fram og tilbaka. Það var erfitt að skilja einhverja eftir.“

Nokkra athygli vekur að hann valdi ekki Hunter Mahan, núverandi heimsmeistara í holukeppni í lið sitt og tvöfaldan sigurvegara á PGA Tour í ár. Eins voru Rickie Fowler og Nick Watney taldir koma sterklega til greina, en hlutu ekki náð fyrir augum Love.

Ryder Cup keppnin fer fram síðar í mánuðnum þ.e. 28.-30. september nálægt Medinah fyrir utan Chicago.

Til þess að sjá myndir af bandaríska Ryder Cup liðinu 2012 SMELLIÐ HÉR: