DJ finnst hann bestur í heimi … fyrir Opna breska
Flestir tippa á að Dustin Johnson (DJ), 32 ára, sigri á 145. Opna breska sem hefst í dag, 14. júlí 2016.
DJ sjálfur hefir látið hafa eftir sér að sér líði eins og besta kylfingi heims fyrir risamótið.
Hann sigraði á Opna bandaríska í s.l. mánuði og síðan varð hann líka í 1. sæti á Bridgestone Inv. heimsmótinu, næsta móti sem hann tók þátt í.
Samkeppnin er samt hörð því nr. 1 á heimslistanum Jason Day, tvöfaldur risamótssigurvegari Jordan Spieth og Rory McIlroy frá Norður-Írlandi munu eflaust veita DJ harða samkeppni.
„Ef ég spila upp á mitt besta, trúi ég því að ég sigri,“ sagði DJ.
„Mér líka sigurlíkur mínar. Auljóslega spila ég ansi vel í augnablikinu. Mér finnst allataf eins og ég sé besti kylfingur heims og ég býst alltaf við að spila til sigurs.„
Elsta atvinnumót í heimi hófst einmitt í dag kl. 6:32 að staðartíma (5.32 að okkar tíma hér á Íslandi eða fyrir u.þ.b. 2 1/2 tímum).
The oldest championship in professional golf gets under way at 06:35 BST on Thursday.
Sigur myndi ekki aðeins þýða að DJ myndi halda á lofti einum af þekktustu sigurbikurum í golfíþróttinni – Claret Jug – sem fyrst var afhentur sigurvegara í móti 1873 – heldur myndi DJ þar með vinna 2. risamótstitil sinn.
Með sigri sínum á Opna bandaríska batt DJ endi á langa bið eftir fyrsta risamótstitli sínum – eftir margar misheppnaðar tilraunir.
Og DJ sagði um það: „Það er algjörlega öðruvísi að vera ekki að reyna að vinna fyrsta risatitilinn. Það er svo sannarlega góð tilfinning„
„EF ég er að spila til sigurs á sunnudaginn, bara með því að vita að ég get landað þessu þá er það rosa gott fyrir sjálfstraustið á síðustu metrunum.“
Meðal þeirra skipta þar sem DJ hefir komist nálægt því að sigra var árin 2010, 2011 og 2015, en enginn hefir nokkru sinni efast að hann hefði hæfnina til þess að sigra á linksurum.
Með sigri á Royal Troon, þar sem mótið fer fram, gæti DJ komið Day úr efsta sæti heimslistans, svo framarlega sem Day er ekki meðal efstu 10 (sem aftur á móti gæti reynst erfitt og DJ hefir ekkert að segja um).
Bandarískir kylfingar hafa sigrað á síðustu 6 risamótunum sem fram hafa farið á Royal Troon, þ.á.m. Todd Hamilton 2004.
Og það gæti verið lengd DJ af teig sem er lykillinn að sigri, en fyrstu 3 holurnar eru allar undir 400 yördum (366 metra), og á par-5 4. brautinni og 6. brautinni ætti að vera lítið mál að vera inni á flöt hjá honum í tveimur.
En þetta á allt eftir að koma í ljós ….. Kannski stendur einhver algerlega óvæntur uppi sem sigurvegari í lokin eins og hefir svo margoft gerst.
Hér má fylgjast með stöðunni á 145. Opna breska á Royal Troon SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
