Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 25. 2017 | 10:30

David Howell bendir sjálfur á reglubrot sitt og gefur frá sér mótstékkann

Enski kylfingurinn David Howell er skínandi dæmi þess að enn eru til herramenn í golfíþróttinni, sem sýna og sanna að golfið er herramannsíþrótt.

Howell neitaði að taka við tékk fyrir árangur sinn í Shenzhen Open, eftir að gera sér grein fyrir að hann hefði líklega brotið golfreglurnar.

Howell, sem tvívegis hefir verið í Ryder bikars liði Evrópu, var ekki viss um að hann hefði lagt boltann frá sér á réttum stað við 15. braut á 2. hring mótsins og fór sjálfur til dómara eftir mótið til viðræðna við dómara.

Þeir kváðu upp með það að Howell hefði ekki spilað boltanum frá réttum stað og að um golfreglubrot væri að ræða.

Fyrir brotið hefði Howell fengið tvö víti og önnur tvö fyrir að skrifa undir rangt skorkort og því  bættust 4 högg á skorkortið hjá honum, sem þýddi að hann náði ekki niðurskurði.

Í fréttatilkynningu frá Evrópumótaröðinni sagði: „Hann var óviss hvort hann hefði slegið frá réttum stað […] og hann fór fram á að hann fengi viðeigandi víti.

Næsta mót Howell er Volvo China Open, sem fram fer í Topwin Golf & CC í Peking og hefst á fimmtudaginn n.k.