Davíð Gunnlaugsson ráðinn verkefnastjóri PGA á Íslandi
PGA á Íslandi hefur ráðið Davíð Gunnlaugsson sem verkefnastjóra samtakanna. Að sögn Hlyns Geirs Hjaltasonar, formanns PGA þá eru samtökin nú á tímamótum. „Við höfum unnið að stefnumótun félagsins undanfarna mánuði og okkar verkefni er að vinna að framgangi golfíþróttarinnar á Íslandi. Það ætlum við að gera með þremur megin markmiðum, efla unglingagolfið, auka vægi kvenna í íþróttinni og vinna þétt með landsbyggðinni í þeirra uppbyggingarstarfi.“
Davíð Gunnlaugsson er ráðinn til samtakanna til að verkefnastýra verkefnum sem lúta að fyrrgreindum markmiðum. Þau verkefni eru:
Að setja á laggirnar PGA Unglingagolf sem á sér fyrirmynd í Bandaríkjunum sem PGA Jr. League. Skemmtileg mótaröð sem laðar að börn og unglinga að íþróttinni. Um er að ræða liðakeppni á milli klúbba og geta byrjendur sem og lengri komnir spilað saman í liði þar sem leikfyrirkomulagið er Texas Scramble. Í Bandaríkjunum hefur þetta fyrirkomulag stóraukið nýliðun í íþróttinni.
Í fyrra stóð PGA að stelpugolfsdegi í samstarfi við GSÍ, GKG, Íslandsbanka, Eimskip og Icelandair þar sem markmiðið er að auka þátttöku kvenna á öllum aldri í golfi. Þetta verkefni tókst með eindæmum vel og mun PGA standa að slíku verkefni aftur í ár.
PGA golfbíllinn er verkefni sem áhugi er að vinna að með þéttu samstarfi við GSÍ. Um er að ræða golfkennarabíl sem fer á milli staða út á landi. Haldin verða námskeið fyrir landsbyggðina í samstarfi við þá golfvelli sem eru út á landi. Meiningin er jafnframt að fá styrk í þetta verkefni frá Ryder Cup fund.
Davíð Gunnlaugsson er 26 ára og er í sambúið með Heiðu Guðnadóttir og er að útskrifast sem PGA golfkennari í vor. Davíð varð Íslandsmeistari í sveitakeppni unglinga með GKj árið 2005 og hefur nokkrum sinnum verið meðal efstu manna á Eimskipamótaröðinni auk þess að hafa tvisvar verið valinn til að spila í KPMG bikarnum. þá varð Davíð Klúbbmeistari hjá Kili 2014.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
