Thorbjörn Olesen. Daninn Thorbjörn Olesen er í 7. sæti á Opna breska fyrir lokahringinn!
Ungur danskur kylfingur, Thorbjörn Olesen, er svo sannarlega búinn að standa sig vel á 141. Opna breska. Olesen er aðeins 22 ára, fæddur 21. desember 1989. Hann komst aðeins í golffréttirnar fyrr á árinu þegar hann sigraði á Opna sikileyska á Evróputúrnum, en það var 1. sigur Olesen á evrópsku mótaröðinni.
Og svo er hann nú í 7. sæti á Opna, en lokahringurinn verður spilaður í dag. Olesen er búinn að spila geysigott golf – er á samtals 4 undir pari, 206 höggum (69 66 71). Hann verður að vinna upp 7 högg Adam Scott sem leiðir á 11 undir pari. Aldrei að vita hvað getur gerst ef Olesen á góðan lokahring og Scott fer á taugum – kannski stendur Dani uppi sem sigurvegari á Opna breska? Hvað sem gerist, þá er spennandi golfdagur framundan og eiginlega hápunktur ársins hjá öllum golfunnendum – lokadagur Opna breska 2012!
Golf 1 hefir áður verið með stutta kynningu á Olesen í greinaflokknum: Hver er kylfingurinn? sem sjá má með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
