Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2015 | 07:00

Daly spilar golf eftir sjúkrahúsvist

Það leið yfir John Daly og hann var fluttur á sjúkrahús með hraði til rannsóknar, s.l. helgi.

Í ljós kom að lunga hafði fallið saman vegna þess að rifbein stakkst í það og Daly náði ekki andanum um stund.

Daly hefir fengist við lasleika í lunganu af og til vegna atviks sem átti sér stað 2007.

Kona ein stökk fram úr runnum á Honda Classic mótinu 2007 og ætlaði að taka mynd af Daly, hann reyndi að stoppa sveiflu sína sló fyrir aftan kúluna og tvö rifbein brotnuðu og hann fór úr axlarlið.

Daly hefir staðið í málaferlum síðan 2007 út af atvikinu.

Hins vegar sást til hans í golfi í gær, þannig að hann hefir ekki haft langa viðdvöl á sjúkrahúsinu, né atvikið verið alvarlegt.