Daly spilar á Alfred Dunhill
John Daly mun spila á móti Evrópumótaraðarinnar í þessari viku Alfred Dunhill Championship, en hann snýr nú aftur til leiks eftir uppskurð á olnboga.
Tvöfaldi risamótsmeistarinn (Daly) er meðal keppenda í Leopard Creek golfklúbbnum nálægt Kruger þjóðgarðinum í norðurhluta Suður-Afríku og er þetta aðeins 2. mótið sem hann tekur þátt í frá uppskurði sem hann gekkst undir í júlí til að laga sin í hægri olnboga.
Daly byrjaði ágætlega í BMW Masters í síðasta mánuði en dalaði síðan um helgina og lauk keppni á samtals 5 yfir pari og deildi 48. sætinu.
„Ég er virkilega frískur núna og vil spila,“ sagði Daly s.l. mánudag. „Ég vil ekki eyða árslokunum. Ég myndi gjarnan vilja ná einhverjum árangri í ár svo ég geti spilað á næsta ári.“
Daly spilar nú í Suður-Afríku í fyrsta sinn frá því snemma 1990 þegar hann vann nokkur mót.
Það er næstum áratugur síðan Daly, sem sigraði á PGA Championship 1991 og á Opna breska 1995 vann á PGA eða Evrópumótaröðinni en 68 högga 1. hringur hans á BMW Masters í Kína í síðasta mánuði, lofar góðu.
Daly er í ráshóp með Charl Schwartzel og Brendon de Jonge í þessari viku og það gæti bara vel verið að Leopard Creek golfvöllurinn henti honum.
„Þetta er völlur sláttumannanna í golfinu,“ sagði Daly eftir að hann hafði litið völlinn augum í fyrsta sinn. „Maður verður að hitta á braut. Flatirnar eru snúnar. Þetta er þessháttar völlur að manni þykir næstum því betra að eiga eftir 7 metra pútt en 3 metra.“
Alfred Dunhill er 2. af 3 mótum í Suður-Afríku sem markar upphaf á nýju keppnistímabili Evrópumótaraðarinnar og Race to Dubai 2014.
Daninn Morten Örum Madsen sigraði á hinu virta South African Open s.l. sunnudag meðan Henrik Stenson, Justin Rose, Luke Donald, Sergio Garcia, Schwartzel og De Jonge hafa tilkynnt þátttöku sína í 30 manna mótinu Nedbank Golf Challenge í Sun City . 5-8. desember n.k.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
