Dagbjartur Sigurbrandsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 23. 2018 | 10:00

Dagbjartur með í sterku móti í Frakklandi

Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur verður á meðal keppenda á sterku piltamóti í Frakklandi, Internationaux de France U18 Garçons – Trophée Michel Carlhian.

Keppt er á Golf de Saint Germain vellinum dagana 29. mars – 2. apríl.  Keppendur eru 18 ára og yngri.

Dagbjartur varð tvöfaldur Íslandsmeistari í fyrra í aldursflokknum 15-16 ára. Hann sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni og á Íslandsmótinu í golfi í flokki 15-16 ára.

Komast má á heimasíðu Golf de Saint Germain með því að SMELLA HÉR: 

Aðalfréttagluggi: Dagbjartur Sigurbrandsson. Mynd: Golf 1