Couples fyrirliði USA í Ryder Cup 2016?
Hafi komið á óvart að Tom Watson var valinn fyrirliði Bandaríkjanna í Ryder Cup, þá virðist á hinn bóginn augljóst hver leiðir bandaríska Ryder Cup liðið 2016 skv. Phil Casey á Irish Examiner.
Fred Couples hefir 5 sinnum tekið þátt í Ryder Cup, sem leikmaður, hann var tvívegis í vinnisngsliði, tvívegis í tapliði og var í liði Bandaríkjamanna þegar liðin skyldu jöfn á Belfry árið 1989.
Hann hefir líka sigrað 4 sinnum í röð í heimsbikarnum ásamt Davis Love frá árinu 1992.
Nú var Couples fyrirliði Bandaríkjanna í sigri liðsins gegn Alþjóðaliðinu í Forsetabikarnum í Muirfield Village, Ohio um s.l. helgi.
Þetta er í 3. sinn í röð sem liðið vinnur undir hans stjórn og þar áður var hann í 3 sigurliðum Bandaríkjanna í Forsetabikarnum.
Couples sagði að hann yrði ekki aftur fyrirliði í Forsetabikarnum og það er túlkað sem að hann gefi kost á sér sem fyrirliða í Ryder Cup 2016.
„Að vinna þrisvar í röð er nógu gott fyrir mig,“ sagði Couples, sem sagði jafnfram að „það er annað liðamót sem við höfum ekki unnið svo oft í röð“ á s.l. 20 árum. Lið Evrópu hefir sigrað síðustu 7 af 9 Ryder bikars mótum.
Eru líka einhver vandkvæði á að hinn 54 ára Couples verði fyrirliði bandaríska liðsins í Hazeltine?
Kannski aðeins Couples sjálfur en hann þykir meiriháttar svalur og á m.a. einu sinni að hafa sagt að sér líkaði ekki að svara í símann vegna þess að það gæti einhver verið á hinum endanum.
Vill Couples yfirleitt taka á sig erfiðið í kringum Ryder Cup, þar sem hann verður að vera skuldbundinn í 2 ár áður en keppnin fer loks fram, en spennan og stressið í kringum mótið er þar að auki a.m.k. helmingi meira en í kringum Forsetabikarinn?
Svo mikið er víst að ef bandarískir leikmenn liðsins fengu að verja sér fyrirliða sjálfir yrði Couples fyrirliði Ryder Cup 2016, svo vinsæll er hann!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
