Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2016 | 10:25

Christy O´Connor Jr. látinn

Christy O´Connor Jr. spilaði í 2 Ryder bikars keppnum, sigraði 4 sinnum á Evrópumótaröðinni og vann tvisvar Opna breska öldunga. Komast má á vefsíðu O´Connor með því að SMELLA HÉR: 

Hann var frændi írska atvinnumannsins Christy O’Connor Snr.

Christy O´Connor Jr. dó í svefni meðan hann var á ferðalagi á Tenerife, Spáni.

Hann var sérstaklega þekktur fyrir sigur sinn á Fred Couples í Rydernum 1989.

Hér má sjá myndsskeið af frábærum járnaleik O´Connor með 2-járni í Rydernum 1989 SMELLIÐ HÉR: 

Christy O´Connor var fæddur 19. ágúst 1948 og því 67 ára þegar hann lést.   Hann lætur eftir sig konu sína Ann, dótturina Ann og soninn Nigel.

Meðal þeirra sem vottað hafa samúð sína eru ráðherra ferðamála og íþrótta á Írlandi, Michael Ring.  Í fréttatilkynningu sagði ráðherrann m.a. að Christy O’Connor Jnr hafi verið einn af bestu kylfingum og íþróttamönnum Írlands. Hann hafi gefið mikið til golfíþróttarinnar á Írlandi og verið fyrirmynd margra írskra kylfinga.“

Aðrir sem vottað hafa fjölskyldu O´Connor samúð sína eru m.a.:

Shane Lowry:Very sad news today about Christy O’Connor Jnr. An absolute legend of Irish golf. Thoughts and prayers go out to his family and loved ones.“

Paul McGinley: „We’ve lost a true Irishman, character and golfer – Christy O Connor jnr RIP“

Justin Rose: Very sad news this morning… #RIPChristy #TwoIron #Belfry #RyderCup #TrueGent  SMELLIÐ HÉR

Ian Poulter: Very sad news this morning.  RIP Christy O’Connor Jnr