Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2017 | 08:00

Cheyenne Woods tekur þátt í US Open!

Frænka Tiger Woods og fyrrum skóla- og liðsfélagi Ólafíu Þórunnar „okkar“ Kristinsdóttur, Cheyenne Woods, tók þriðjudaginn fyrir viku þ.e. 30. maí 2017 þátt í úrtökumóti fyrir Opna bandaríska kvenrisamótið eða US Open kvenna.

Úrtökumótið fór fram á Eisenhower golfvelli Industry Hills golfklúbbsins í Industry, Kaliforníu.

Cheyenne átti tvo frábæra hringi upp á 141 högg (71 70), líkt og bandaríski kylfingurinn Brianna Do, sem einnig tók þátt í mótinu og urðu þær efstar og jafnar í þessu úrtökumóti í Industry, þar sem 74 þátttakendur voru – Sjá má eldri kynningu Golf 1 á á Briönnu Do með því að SMELLA HÉR:

Cheyenne Woods kampakát eftir sigurinn á Industry úrtökumótinu fyrir US Open 2017

Cheyenne Woods kampakát eftir sigurinn á Industry úrtökumótinu fyrir US Open 2017

Einungis tvær efstu úr Industry úrtökumótinu fengu þátttökurétt á Opna bandaríska kvenrisamótinu, sem fram fer í Trump National golfklúbbnum í Bedminster, New Jersey, dagana 10-16. júní n.k.

Önnur vinkona Ólafíu Þórunnar á LPGA, Angel Yin varð því miður T-3 ásamt Benyöpu Niphatsophon frá Thaílandi í Industry úrtökumótinu –  (báðar á 143 höggum – Yin (76 67) og Niphatsophon (68 75) ) og er Yin líkt og Valdís Þóra, 1. varamaður úr sínu úrtökumóti inn á Opna bandaríska.