Champions Tour: McCarron ekki ánægður m/1 höggs víti við frídropp – Myndskeið!
Það sem átti bara að vera rútínu dropp fyrir Scott McCarron í gær, föstudag á 1. hring Dominion Energy Charity Classic, sem er mót á Champions Tour, þ.e Öldungamótaröð PGA Tour, snerist í eitthvað allt annað og skrítið.
McCarron var á 1 undir pari, eftir 17 holur og fékk frídropp nálægt 18. flöt. Það var þar, sem allt fór til … verri vegar.
Hann fékk 1 höggs víti fyrir að missa kylfuna sína af slysni og hreyfa við það bolta sinn.
Sjá má atvikið á meðfylgjandi myndskeiði SMELLIÐ HÉR:
McCarron sem þá var að vonum pirraður fékk skolla á lokaholunni og lauk hringnum á sléttu pari, þ.e. 72 höggum í The Country Club of Virginia.
Rocco Mediate, David Toms, Joe Durant og Bernhard Langer eru á efstir og jafnir eftir 1. hring á samtals 5 undir pari hver.
Scott McCarron er hins vegar T-44, en þátttakendur í mótinu voru 69 (nú 68 eftir að John Daly dró sig úr því).
Til þess að sjá stöðuna á Dominion Energy Charity Classic SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
