Champions Tour: Langer vann Schwab Cup í 3. sinn
Þýski golfsnillingurinn Bernhard Langer vann Schwab Cup nú um helgina 3. skiptið, en hann hafði áður unnið bikarinn 2014 og síðan 4 árum áður.
Schwab Cup er veittur þeim einstaklingi sem efstur er á stigalista Champions Tour.
Á síðasta tímabili var Langer búinn að sigra 5 sinnum á Champions Tour þ.á.m. 2 sinnum á risamóti og erfitt að ímynda sér að hægt væri að toppa þá frammistöðu.
En Langer er enn, 58 ára, að setja sér markmið í golfinu og nældi sér í sinn 3. Schwab Cup og $ 1 milljóna tékkann sem honum fylgir.
Aðspurður hver markmið hans væru fyrir næsta tímabil svaraði Langer:
„Ég hef ekki hugsað um nein markmið enn, en þau verða býsna svipuð þeim sem ég hafði nú í ár. Maður vill vinna mót, maður vill sigra í risamótum og maður vill vinna þetta (Charles Schwab Cup), verða leikmaður ársins og á toppi peningalistans.“
„Það er hægt að spila um alveg helling. Það verður erfiðara og erfiðara eftir því sem árin líða, hugsa ég, eftir því sem maður eldist og yngri strákarnir komast upp, en það eru alltaf væntingar. það eru alltaf náungar sem standa upp úr eins og Hale Irwin og Tom Watson og nokkrir aðrir og ég verð vonandi einn af þeim.„
Til þess að sjá lokastöðuna á lokamóti Champions Tour, Charles Schwab Cup Championship SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
