Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 24. 2014 | 21:00

Champions Tour: Langer efstur e. 1. dag British Senior Open e. hring upp á 65 högg!!!

Bernhard Langer er efstur á British Senior Open eftir hring upp á 6 undir pari, 65 högg í dag á Royal Porthcawl í Wales, þar sem mótið fer fram.

Langer fékk fugl á 3., 4., 6. og 8. holurnar og fór í 5 undir pari þegar hann fékk líka fugl á löngu 13. holuna.  Hann missti högg á 16. holu en náði því strax aftur með fuglum á síðustu tveimur holunum.

„Sex undir er mjög ánægjulegt,“ sagði Langer. „Ég spilaði skynsamlega, sumar holur vel aðrar frábærlega.“

„Ég hélt mér frá glompunum og úr kálinu og gaf sjálfum mér tækifæri.  Og ég er ánægður með fugl-fugla endinn.“

Langer er að reyna að bæta öðrum Opna breska titli við í safnið en fyrir á hann þann sem hann vann í Carnoustie 2010.

Langer er með 2 högga forystu á Bandaríkjamanninn Bob Tway, sem er á 4 undir pari, 67 höggum.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á British Senior Open SMELLIÐ HÉR: