Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 11. 2021 | 23:30

Champions Tour: Furyk sigraði á US Senior Open

Jim Furyk sigraði á risamótinu US Senior Open í  öldungadeild PGA, Champions Tour.

Mótið fór fram dagana 8.-11. júlí í Omaha, Nebraska.

Sigurskor Furyk var 7 undir pari, 273 högg (72 64 66 71)

Öðru sætinu deildu þeir Mike Weir frá Kanada og Retief Goosen frá S-Afríku, báðir 3 höggum á eftir Furyk þ.e. á samtals 4 undir pari, hvor.

Sjá má lokastöðuna á mótinu með því að SMELLA HÉR: